Gaman að sjá þig!

Þessi vefur er lifandi lestrarsamfélag. Við viljum endilega fjölga lesandi fólki og leiða sem flestum fyrir sjónir hvernig bækur geta breytt lífinu til hins betra.

Hér finnur þú einföld ráð til þess að stofna bókaklúbb og sniðug lestrarráð fyrir vinnustaðinn þinn. Þá eru hér þrjátíu ráð til þess að fjölga lestrarstundum hversdags – þú getur bætt við fleirum ef þig langar til.

Svo mælum við með markmiðablöðunum þar sem hægt er að setja upp spennandi lista sem falla að fjölbreyttum smekk. Hvað með að klára bók úr neðstu hillunni, lesa bók með villidýri á kápunni eða rauða bók sem þú fékkst í afmælisgjöf?

Stofnanir og samstarfsaðilar geta líka hlaðið niður veggspjöldum og öðru efni með slagorðinu Bókaðu stund fyrir bók.

Við hvetjum þig til þess að ræða bækur og lestur við aðra í kringum þig og vera með í að hampa þeirri ótrúlega gömlu og einkennilega lífseigu uppfinningu sem bókin er.

Mundu líka að bækur eru alls konar, myndskreyttar, þéttskrifaðar, skáldaðar, faglegar, þykkar, þunnar, lýrískar og/eða sjokkerandi.

Gleðilega bókastund.