
Um verkefnið
Íslendingar verja að jafnaði um klukkustund á dag í að lesa eða hlusta á bækur. Meðaltíminn sem fólk ver í bóklestur hefur þó farið minnkandi með árunum samkvæmt könnunum. Árið 2023 var hann 69 mínútur og 66 mínútur árið 2024.
Samdrátturinn skýrist að mestu af því að fleiri segjast ekki verja neinum tíma í bóklestur. Tæplega fimmtungur landsmanna (19%) les aldrei bækur, en undanfarin tvö ár hefur þetta hlutfall verið lægra, eða um 14 til 15%.
Þessari þróun viljum við snúa við. Því stöndum við hjá Miðstöð íslenskra bókmennta fyrir lestrarhvatningu fyrir fullorðið fólk um land allt, í því skyni að auka bóklestur.
Með lestrarhvatningu viljum við fá fleiri til að upplifa og njóta þess sem lesturinn færir hverjum og einum. Við viljum hvetja lestrarhesta til að lesa enn meira og hina, sem lesa lítið eða ekki neitt, til að hefja lesturinn.
Bókaðu stund fyrir bók að þínu skapi!