
Ráð til að stofna bókaklúbb
Kannið áhugann í nærumhverfinu, í vinahópnum, á íþróttaæfingu, í náminu, á vinnustaðnum. Það tekur ekki nema augnablik að stofna bókaklúbb en hann gæti enst lengi.
Gerið þetta að góðri stund. Hittist á kaffihúsi, heima í kvöldmat, á safni, í drykk, eða hvar sem ykkur dettur í hug. Þá langar ykkur aldrei að missa af fundi.
Verið mátulega mörg.
Veljið dagsetningu strax og standið við hana. Mild tímapressa hjálpar til við að halda sér við efnið.
Skiptist á að velja bók. Það má auðvitað ræða innan hópsins hvar áhuginn liggur, en ef allir fá að velja eru allir sáttir.
Ekki setja of mikla pressu á umræðurnar. Það getur vafist fyrir fólki að vilja vera menningar- og spekingsleg, en þess þarf ekki. Skemmtilegast er einfaldlega að spjalla út frá ykkar persónulegu upplifun af bókinni.