Fyrir einstaklinga

Lestrarráð

Hér eru þrjátíu góð ráð til að lesa meira. Áttu þér uppáhaldsráð?

 

Er síminn þinn með 7% rafmagn? Láttu hann eiga sig og lestu í bók.

Ertu uppi í rúmi? Lestu fyrir svefninn. Það hefur athyglisverð áhrif á draumana.

Ertu hjá tannlækni? Lestu á biðstofunni. Best að hafa bókina meðferðis.

Ró og friður? Langbesti staðurinn til þess að lesa er á klósettsetunni, segja sumir.

Fljúga hærra? Flugvél er staðurinn, með greini, til þess að lesa. Lengstu flugin eru best.

Skrúbba, svamla? Það er mjög þægilegt að lesa í baði. Engin rafmagnstæki, því vatnið er háskalegt.

Mæta fyrr? Byrjaðu vinnudaginn á rólegri lestrarstund, kannski 15 mín. Þetta tíðkast í mörgum skólum og er ómissandi gæðastund.

Á rauðu ljósi? Kannski ekki málið að taka upp bók – en hér má hugsa um næstu/síðustu bók.

Imbakassinn? Það er margt skemmtilegt í sjónvarpinu. En hvað með að lesa smá á meðan auglýsingarnar eru?

Sybbið fólk? Lestu upphátt með börnum, eða fyrir börn, fyrir háttinn. Traust og ómissandi samvera sem kveikir góð samtöl.

Siesta? Það er viðtekinn siður suður í löndum að leggja sig um miðjan dag. Frábær afsökun til að lesa einn kafla í sófanum.

Lánastarfsemi? Ef þú ert á leið í heimsókn gæti verið gaman að hafa meðferðis bók úr hillunni heima til að lána gestgjafanum.

Er síminn í hleðslu? Lestu á meðan.

Vakna snemma? Lestu yfir morgunverðinum. Lækka bara í útvarpinu.

Röð? Hver kannast ekki við að vera númer 14 í röðinni í símkerfinu hjá næstu stofnun? Best að drepa bara tímann með því að lesa.

Framkvæmdir? Meðan málningin er að þorna er snjallræði að lesa í bók. Það hvílir hug og skrokk og þið komið tvíefld að verkinu á eftir.

Hillumetrar? Ekki setja endilega allar bækur upp í hillu. Hafðu bókina sem þú ert að lesa, eða aðrar girnilegar bækur, í almennri augsýn á heimilinu. Þetta virkar.

Smjatt-smjatt? Hádegishlé eru víða furðu löng miðað við hvað tekur stuttan tíma að snæða. Það má lesa yfir matnum, eftir matinn, meðan maturinn er að hitna, o.s.frv.

Tromlusóló? Það er vísindalega sannað að þvottavélamínútur eru lengur að líða en venjulegar mínútur. Hafðu litla bókahillu í þvottahúsinu, frábær afþreying meðan þú bíður. Og bíður.

Sólbað? Það segir sig nú eiginlega sjálft að bók er besti vinurinn á sólbekknum, við sundlaugina, í skógarrjóðrinu. Þannig leiðist engum meðan sólin bakar hörundið.

Frí? Rammaðu inn fríið með góðri bók, hvort sem það er páskafrí, sumarfrí eða frívakt. Þá heldurðu vissri rútínu, nema bara skemmtilegri.

Náttúrubarn? Auktu á náttúruupplifun eða slökun með því að hafa bók í farangrinum. Hægt að lesa í tjaldinu, á kletti, við varðeldinn. Bók um staðinn er sniðug, fræðibók, myndabók, eða skáldskapur úr óvæntri átt.

Safna sér saman? Bókasöfn eru vitanlega staður til að sækja sér bækur, en líka til að lesa í bókum. Á söfnunum eru alls staðar sófar og stólar – og litlar líkur á truflun. Ótrúlegt úrval.

Bekkurinn minn? Ótal staðir í bæ og borg eru hannaðir fyrir fólk til að setjast niður. Vænlegt er að bera ævinlega bók í innanávasanum. Ljóð, einhver?

Bláskjár? Já, já, þú vinnur mikilvæg störf í tölvunni og mátt helst ekki fara með hana á haugana, en það er hollt fyrir augun og hugann að breyta um sjónsvið. Gerðu teygjur, lestu í bók, með reglubundnu millibili.

Wiki-þú? Þegar eitthvað kemur upp sem þig langar að gúggla, athugaðu fyrst hvort svarið gæti leynst í bók á heimilinu. Bara til tilbreytingar. Það er gaman að heilsa upp á gamlan vin.

Er langt síðan þú last í bók? Engar áhyggjur, bókin hefur ekki gleymt þér. Sæktu bók, opnaðu hana með viðhöfn, strjúktu kjöl og síður. Prófaðu að lesa hálfa blaðsíðu. Er þetta kannski eitthvað?

Lesþorsti? Settu bók á næsta óskalista, afmælis- eða jólagjafalista.

Blint stefnumót? Farðu þangað sem þú geymir bækur á heimilinu, ef þú átt slíkan stað, lokaðu augunum og bentu á kjöl. Blaðaðu í bókinni sem þú lentir á, kannski er hún óvæntur gimsteinn.

Á leið í gufubað? Glens. Það er enginn að ætlast til þess að lesið sé í gufubaði. Þar ríkir þögnin ein.

Lestur er bestur – muna samt að leiða ekki algjörlega hjá sér samskipti við fólk í grennd. Fólk getur verið mjög ágætt líka.