
Ráð fyrir vinnustaði
Skiptibókahillan
Það getur verið skemmtilegt að setja upp skiptibókahillu í sameiginlegu rými. Þar má leggja inn lesnar bækur að heiman og taka spennandi bækur með heim. Er kaffistofan góður staður? Eða þessi gangur þarna sem hefur aldrei nýst í neitt? Munið að merkja ykkur bækur sem þið viljið helst fá aftur!
Hljóð stund
Upplagt er að taka stutta stund við upphaf vinnudags til að lesa í bók í hljóði, kannski bara í korter. Það er ekkert að því að mæta fyrr og hafa kósí, samt engin skyldumæting. Tíðkast í mörgum skólum og sendir rósemd inn í daginn.
Lifandi upplestur
Að sjálfsögðu má panta rithöfund til að lesa upp á vinnustaðnum, þótt það sé ekki desember. Upplestur er ánægjulegt uppbrot á vinnuvikunni – og gaman að hitta höfunda í eigin persónu. Panta má heimsóknir t.d. í gegnum skrifstofu Rithöfundasambands Íslands og gildandi taxtar sjást á vef sambandsins.
Hvernig týpa er sessunauturinn?
Bóka-swing er ein leið til að kynnast betur. Áhugasamir setja nöfn sín í pott, draga sér félaga og skella sér í týpugreiningu. Svo velur hver og einn bók handa félaganum á bókasafni og laumar á skrifborðið. Ræðið úrlausnir við mögulegum vanskilasektum strax í upphafi.
Skjáhvílur
Er gamla landslagsmyndin sem leikur um tölvuskjáina ekki orðin dálítið lúin? Tækniklár og bókvænn starfsmaður gæti tekið að sér að setja inn góðar tilvitnanir í heimsbókmenntirnar í staðinn. Hví ekki?
Lampapartí
Við vitum að snjallsímarnir lýsa sig upp sjálfir og þess vegna er alls staðar hægt að nota þá. Hvað með að bæta lýsinguna, til dæmis setja upp góðan leslampa þar sem fólk eyðir hádeginu? Það er róandi að sjá einhvern gleyma sér yfir góðri bók.
Sendast og endast
Margs konar störf í nútímasamfélagi innihalda biðtíma og regluleg hlé. Sendill í bíl í lausagangi. Leikari í bið eftir hljóðmanni. Auðvitað tilbúin dæmi, en það er ekki úr vegi að hafa góðar bækur til taks í rýmum þar sem annars væri venjan að grípa til símans.
Biðstofan
Kannski er fiskabúr á biðstofunni á þínum vinnustað. Mögulega kaffivél. Eldgömul tímarit? Bækur eiga líka heima þar og gætu stytt þakklátum viðskiptavinum stundir.
Ó, blessuð vertu …
Átt þú eitthvað vantalað við vinnufélaga? Hressandi leið til að koma því til skila gæti verið upplestur á ljóði. Þetta léttir andrúmsloftið og færir fólki eitthvað til að ræða yfir kaffinu. Má einnig nota við tímamót, s.s. afmæli, að loknu vel unnu verki, eða bara á degi bókarinnar.
Bókaklúbbur
Sígilt ráð er að stofna bókaklúbb meðal áhugasamra vinnufélaga. Hann getur auðveldlega starfað utan vinnutíma og styrkir um leið böndin. Sjá einföld ráð til að stofna bókaklúbb hér.
Bónusráð, fyrir stjórnendur:
Næsta starfsmannagjöf
Bókasafnskort. Inneign í bókabúð. Innpökkuð skáldsaga. Myndrík stórbók. Fallegt fagrit sem tengist starfinu. Stjórnendur fyrirtækja hafa ýmsa möguleika til að efla lestur og breiða út áhuga á bókmenningu, ef það er þeirra vilji. Starfsmannagjafir og afmælisgjafir koma þar sterkar inn.
Bónusráð II, fjöltyngdur vinnustaður:
Bókmenntir ferðast oft milli mála, þess vegna er að sjálfsögðu hægt að ræða bókmenntir við vinnufélaga sem tala önnur mál. Og vel getur verið að starfssystkin, sem eru að læra íslensku, séu á höttunum eftir íslensku lesefni við hæfi – þá er þjóðráð að lána þeim góðar bækur eða spjalla um möguleikana.