
Af hverju bók?
Í nútímasamfélagi þar sem áreiti er oft yfirþyrmandi, bæði skært og suðandi, fer þráin eftir dýpri hversdagslegum athöfnum vaxandi.
Bókin er þögull og þolinmóður vinur. Hún blindar ekki, bilar ekki, reynir ekki að freista þín með öðrum inngripum og það þarf ekki að hlaða hana – hún hleður þig.
Í bók er vandlega hugsaður texti, mótvægi við hraðfærslur dagsins. Þá má nefna að bókin safnar ekki um þig upplýsingum; í raun veit enginn hvar þú ert eða hvað þú ert að lesa. Þess vegna er bóklestur á okkar tímum kannski einfaldasta andófið.
Bókin krefst þess ekki að við leggjum niður aðrar tómstundir – hún býður einfaldlega upp á nærandi hlé þegar þér hentar, hvort sem er í skamma stund eða heila kvöldstund. Slík stund er um leið samtal við heiminn.