
Markmiðablöð
Það getur verið gott að setja sér markmið í öllum lestri, líka yndislestri. Hvað ætlar þú til dæmis að lesa eða hlusta á margar bækur á árinu? Eru það allt skáldsögur eða langar þig að prófa teiknimyndasögur í bland? Hvað með ljóð?
Hér finnur þú markmiðablöð sem auðvelda lesturinn og víkka sjóndeildarhringinn. Þú velur þér markmiðablað, hleður niður og prentar það út. Svo skráir þú bókatitla að eigin vali í boxin. Best er að hafa markmiðin raunhæf – ekki ætla þér um of. Það má alltaf lengja listann ef vel gengur.
Settu þér hressandi markmið og bókaðu stund fyrir bók!