Mánasteinn

Bók mánaðarins

Mánasteinn - Drengurinn sem aldrei var til
eftir Sjón

Árið er 1918 og frá Reykjavík má sjá eldgosið í Kötlu mála himininn nótt sem dag. Lífið í höfuðstaðnum gengur sinn vanagang þrátt fyrir náttúruhamfarir, kolaskort og styrjöldina úti í hinum stóra heimi. Íslendingar búa sig undir að verða fullvalda þjóð. 

Drengurinn Máni Steinn lifir í kvikmyndunum. Sofandi dreymir hann myndirnar í tilbrigðum þar sem vefur atburðanna er slunginn þráðum úr hans eigin lífi. Vakandi hefst hann við á jaðri samfélagsins. 

En þá tekur spænska veikin land og leggur þúsundir bæjarbúa á sóttarsæng, sviptir hundruð lífinu. Skuggar tilverunnar dýpka.

Sjón hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki skáldverka fyrir Mánastein árið 2013.