
Bókaklúbbur þjóðarinnar
Í Bókaklúbbi þjóðarinnar lesa lesendur um allt land sömu bókina, hvar og hvenær sem þeim hentar. Eins og í öllum góðum bókaklúbbum er hugmyndin að umræður skapist í kjölfarið um efnið – í þessu tilviki á kaffistofum, við eldhúsborðin og í fermingarveislum. Um leið vekur lesturinn vonandi þorsta í enn meira lesefni.
Fyrsta bók Bókaklúbbs þjóðarinnar er Tilfinningar eru fyrir aumingja eftir Kamillu Einarsdóttur.
Hlaðvarpið Morðcastið mun taka bókina fyrir í sérstökum Bókacast-þætti sem fer í loftið 22. október. Tilvalið að byrja strax að lesa bókina og hlusta svo á þáttinn.
Skráðu þig í klúbbinn hér. Þú færð upplýsingar um bækur næstu 12 mánaða í pósthólfið og ýmislegt annað bókmenntatengt efni.
Við bendum líka á markmiðablöðin þar sem bæta má við bókum á eigin lista. Bókaðu stund fyrir bók að þínu skapi!