
Látum bókina ganga
Látum bókina ganga er fyrirtækjaáskorun Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Hér taka fyrirtæki og stofnanir höndum saman um að halda lestrarhvatningunni Bókaðu stund fyrir bók gangandi og styðja þannig við lestur og lestrarmenningu.
Hvert fyrirtæki sem leggur fram styrk og skráir sig í bókina skorar á annað fyrirtæki að gera slíkt hið sama. Þannig gengur bókin áfram frá einu fyrirtæki til annars. Smám saman fyllist bókin af nöfnum fyrirtækja sem hafa tekið áskoruninni og verður sýnilegt tákn um að atvinnulífið standi með íslenskri tungu og öflugri lestrarmenningu.
Viltu leggja verkefninu lið með fjárframlagi?
og þú færð sendar nánari upplýsingar.